23.2.2009 | 01:45
byrja að blogga aftur ?
hææ <3
ég hef verið að velta vöngum yfir því hvort að ég eigi að byrja að blogga aftur .. og finnst mér það alls ekki slæm hugmynd (: ..
þannig að núna ætla ég að segja ykkur hvað hefur á daga mín drifið .. og hvað ég er búin að vera að brasa ..
sko , hvar á ég að byrja .. ég veit ekkert hvað ég á að segja ykkur ... ég var í skola fyrir áramót .. og svo byrjaði ég í honum aftur eftir áramót..en meikaði hann ekkert svo lengi , mér leið ekkert vel þar þannig að ég ákvað bara að hætta ..
svo er ég líka búin að taka nokkur feilspor síðan að ég kom úr meðferðinni en það þýðir ekkert að vera að draga sig niður útaf því .. maður byrjar bara aftur og reynir .. ég skil ekki alveg afhverju að það verður allt svona klikkað ef að ég dett í það , kannski er það vegna þess að fólkinu þykir vænt um mig eða eitthvað ..
sko ég sé ekkert að því að ég fái mér áfengi en flestir aðrir í kringum mig sjá eitthvað að því .. svo af því að þeim finnst mér ekkert ganga svo vel þá á kannski að senda mig á Laugarland .. það er svona eitthvað heimili fyrir stelpur .. en ég efast alveg stórlega um að mér eigi eftir að ganga eitthvað betur þar.. þar sem að þar eru svo mikið að reglum og ég og reglur eigum ekkert sameiginlegt .. reglur í minum huga er eitthvað til þess að brjóta ..
þessi staður sem að ég bý á er besti staður sem að ég hef verið á .. ég elska fólkið þar og þau taka mér eins og að ég er .. þau hafa haft endalausa þolinmæði gagnvart mér og núna held ég að það sé að koma að þvi að sú þolinmæði sé á enda .. ég ætla mér aldrei að detta í það þegar að ég geri það en það bara einhvernveginn gerist ..
ég svo innilega vill ekki vera send á eitthvað annað heimili .. ég hef það rosa fínt þar sem að ég er .. og þau eru mér sem fjölskylda .. ég vona að ég fái að vera þarna áfram ..
ég veit ekkert hvað eg á að segja meira .. ég ætla að láta fylgja með bréf sem að ég rakst á á netinu :
Höfum við hisst áður? Ef ekki ætla ég að gera stutta grein fyrir mér og tek fram að ég kynni mig ekki fyrir hverjum sem er.
Ég vel aðeins útvalda sem ég þykist viss um að kunni að meta mig ÉG HEF VALIÐ ÞIG. fólk eins og þú er mér mjög kært. því þið eruð næm fyrir eiginleikum mínum takið skjótt ákvörðun um að kynnast mér betur og um leið og við snertumst finnur þú sterka líkamlega þörf fyrir að halda sambandi okkar áfram. Þér finnst engin skömm fyrir að hafa farið "alla leið" á okkar fyrsta ástarfundi, Öðru nær þú ert í sæluvímu og ert tilbúin í fast samband.. í fyrstu var samband okkar aðeins byggt á líkamlegum þörfum en smám saman þróaðist það og dýpkaði , þannig að þú varðst tilfinningalega háður mér. Þér lærðist á að koma með vandamál til mín og fannst að ég kynni ráð við að víkja þeim frá. Þú varst reiðubúin að gefa þig algjörlega á mitt vald. Þegar þú ert með mér finnur þú fyrir öryggi og hlýju. ég létti þér lund,bægi frá leiðindum og þér finnst að þú getir sigrað heiminn, - já eins og þú hafir fundið lykilinn af lífshamingjunni. Sú hugsun gagntekur þig að þú getir ekki lifað án mín. Þú ferð smám saman að ýta öðrum út úr lífi þinu, því þú veist að ég get fullnægt öllum þörfum þínum. ég er orðinn allt í senn. elskandi, besti vinur og trúnaðarmaður. og ég er ávallt til staðar og til reiðu þegar þú á þarft að halda.
Svo verður þér ljóst að þú hefur helgað mér líf þitt þá fer sú hugsun að læðast að þér hvort þú getir tekið þér hvild á sambandi okkar. því að þrátt fyrir allt þar þarf allt ástfangið fólk á einveru að halda til að ná valdi yfir tilfinningum sínum. þá tekur þú þá ákvörðun um að vera án mín einn dag í senn en eftir klukkutíma verður þér ljóst að allt er svo tómlegt án mín. hugur þinn stefnir aðeins á að fara aftur á minn fund samt finnuru til sektarkenndar yfir að hafa ekki staðið við ákvörðun þina um hvíld frá mér og þá kemuru til mín í miklu uppnámi og ég tek ákveðið á móti þér jafnvel svo að þú finnur til sársauka en samt mikils léttis þetta er sú stund sem ég hef beðið efitr Nú ert þú algjörlega á mínu valdi!! Á þessu stigi samband okkar hættir þú að vera elskhugi minn en verður í staðinn fórnarlamb mitt Markmið mitt frá upphafi var að murka úr þér líftóruna ; aðferðir mínar ganga hægt en markvisst fyrir sig. Ég get unnið á þennan hátt . því að þú getur ekki yfirgefið mig jafnvel þótt þér sé ljóst að ég sé að drepa þig þú ert raunar búin að taka þá ákvörðun um að deyja og láta mig sjá um framkvæmdina.
veistu nú hver ég er ? þér ætti að vera það ljóst þvi að framgreint samband okkar er staðreynd og hefur átt sér stað. ég veit að þú ert að reyna að lifa án min en ég bíð í þolinmæði eftir þér ég fylgist með þér hvert sem þú ferð og biðlund mín er óendanleg ...... því að ÉG ER FÍKNIEFNIÐ ÞITT!!!
takk fyrir mig knús á ykkur öll 
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
14.11.2008 | 17:28
gremja og reiði útí fkn ógeðslega lífið mitt .
jæjaa...
ég hef ekki bloggað hérna ógeðslega lengi !!.. en núna er mælirinn fullur og ég verð aðeins að fá að pústa hérna út. mér er búið að lía ömurlega , og vel líka , en núna líður mér svo glatað að ég er að DEYJA
líf mitt er helvíti .. ég er á veginum til glötunar.
Mamma mín vill ekki hafa mig heima , ég er marg búin að spurja hana um að fá að flytja heim .. en ég fæ alltaf sama svarið. og það er : nei ég vil að þú klárir skólann .. mín túlkun : nei ég vil ekki hafa þig. ég finn svakalega höfnunartilfinningu þegar að hún vill ekki hafa mig heima , hún er búin að vera að senda mig út og suður síðan að ég veit ekki hvenær. ekki er hún byrjuð að senda Alexander , á þessum aldri sem að hann er á núna var mamma byrjuð að senda mig í sveit á sumrinn , ég veit ekki hvað eru mörg ár síðan að ég hef eytt heilu sumri með mömmu , ég held að það hafi öruggllega aldrei gerst. ég elska mömmu mina , en svo virðist sem að hun elski mig ekki nóg til að hafa mig hjá sér. svona er ég óheppinn. ég ætlaði að reyna að fá að fara til akureyrar um helgina .. en nei nei , ekki fékk ég það..
það er svo mikið ógeð að vera ég að það er bara viðbjóður ,
þessi staður sem að ég bý á er fínn , en ég held að það sé ekkert svo mörgum hér sem að líki vel við mig .. mig langar til að geta verið oftar heima , eða bara alltaf .. það væri gaman .
en annars gengur mér ágætlega í skólanum , en samt er þessi skóla það ógeðslegasta sem að ég hef verið í. Fólk þarna er dónalegt , gargar á eftir manni uppnefni . ég held að ég tilheyri hvergi. ég er farin að sakna þess að vera i minu lifi .
ég sakna þess að vera með mínu fólki á hverjum degi , en það er samt ekkert sem að hefir verið að gerast þegar að ég er heima.
en það gæti gerst..
ég vona að einhver nennir að lesa þessa þvælu mína
hatur og reiði ..
eigið góða helgi 
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.9.2008 | 21:48
hæææ <3
ég ákvað að fá kött til þess að gefa fósturpabba minum .. en við getum ekki haft ketti þar sem að við erum með fimm fyrir .. :S .. þannig að ég var að spá hvort að einhver vildi fá svona sætan kött .. þetta er karlaköttur .. svona pínu loðin .. og ég held að hann sé kassavanur ..
en annars er allt gott að frétta af mér :) ... er bara i skolanum og eitthvað :) ... þarf að fara að blogga hérna oftar :)
knús og kossar 
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.8.2008 | 14:18
halló!
Fanney hér ;*
mig langaði svo tilþess að skrifa eitthvað hérna , er ekki búin að skrifa svo LENGI .. þannig að það er kominn tími til :D ..
skólinn byrjaði í dag .. og það er svo mikið af fólki þarna að ég hélt að ég mundi deyja :/ ...
en ég ákvað bara að taka fá fög núna þannig að ég er bara í tveim tímum á dag sem er alveg ágætt sko , svo er ég líka að reyna að finna mér vinnu og eitthvað .. verð að hafa eitthvað fyrir stafni allan daginn ;d .. en það gengur samt ekkert alltaf svo vel .. er alltaf eitthvað að slóra .. en ég er að venja mig á það að leggja mig ekki á daginn :D ... og það er að ganga alveg ljómandi vel ..
Gvuð , mig óraði ekki fyrir því að það yrði svona mega erfitt að vakna á morgnana .. en það er alveg svakalegt .. en það gengur samt , ég er að vakna á morgnana og það er gott D: ..
Svo er ég líka búin að vera að spá GEÐVEIKT í því hvað mig langaar að verða þegar að ég verð stór .. ég bara finn ekki neitt .. það er svo margt um að velja .. og ég veit að ég get orðið það sem að ég vill verða , ef að ég er tilbúin í að leggja þá vinnu á mig sem að þarf :D .. þá get ég allt sem að ég vill ..
en svo er það annað líka , ég er svo rosalega mikill klaufi í því að reyna að kynnast fólki .. það er ekkert að ganga neitt svo vel .. hvernig á ég að kynnast því .. labba af því og segja hæ ? .. nei ég veit það ekki alveg ... komið nú með einhverja sniðuga hugmynd :d ...
svo skil ég ekki alveg hvað allir eru svakalega spenntir yfir þessum handbolta ... vakna korter í sjö til þess að horfa á þennan leik ... ekki alveg minn bolli ...
svo er það líka .. mig langa svo rosalega til þess að æfa einhverja íþrótt ... en hvað !?!?
þetta líf er að stíga mér til höfuðs .. og skólinn að bræða úr heilanum á mér ...
en annars er allt gott að frétta af mér ... er samt ekki alveg nógu dugleg við það að fara á AA- Fundi .. en er samt komin með sponsor og svona :D ... samt er alltof löt við að hringja í hana .. og það er vegna þess að ég veit ekkert hvað ég á að seegja sko , .. en já .. þetta er komið ágætt í bili
knús og kossar 
13.8.2008 | 08:20
Útskrift
jæja þá er komið að því förum við hjónakornin á eftir og er stóra stundin kl 11.15 ...... voða er tímin fljótur að líða ég man þegar ég var að keyra hana þangað 13 mai tætta og úfna bæði á sál og líkama nú er komið 13 ágúst og við mér blasir yndislega dóttir mín sem er að fara á hamarskot og ætlar í skóla hún spurði mig í símanum á mánudagin hvort ég yrði réð ef hún færi í skóla og ekki að vinna því þá gæti hún ekki borgað tölvuna ég sagði nú bara við hana að ég væri mjög stolt af henni að fara í skóla því að eitt að því sem dóttir mín er það er það að hún getur lært ég gleymi ekki einkunum hennar í 9 bekk sem voru bara 8,9, og 10 hún getur þetta alveg bara ef hún vill
jæja er farin að taka mig til heyrumst
knúsið hvort annað
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.8.2008 | 17:34
Leti leti leti
Eða ekki bara búið að vera mikið að gera en að henni fanney minni er allt gott að frétta henni gengur rosalega vel og er að fara að útskrifast pæliði í því búin að vera á götusmiðunni í 14 vikur frábært alveg hreint ég gæti ekki verið stoltari af stelpuni minni svo fer hún á áfangaheimili í beinu framhaldi
en á þriðjudaginn síðasta átti þessi elska mín afmæli 17 ára
og fékk hún dagsleyfi til að fara með mömmu sinni á rúntinn hún vildi nú fara í bæin en við enduðum svo bara á því að vera á selfossi út að borða og rölt í búðir ég gaf henni leyfi til þess að kaupa sér fartölvu gaf henni bara pening upp í hana í afmælisgjöf það er svo mikið vesen að taka borð tölvuna með svo hún verður bara hérna heima
eiga líka ekki flest allir á hennar aldri fartölvu
vona bara svo innilega að hún virði þetta við okkur en nóg um þetta
getur lífið orðið mikið betra við fjölskildan erum búin að ferðast voða mikið í sumar og ég hef ekki þurft að hafa neinar áhyggjur af fanney þvílíkur munur
við erum svo að fara til hennar á morgun kannski er það síðasti sunnudagurinn fyrir útskrift
en að lokum hvet ég alla til þess að lesa viðtalið við mumma í 24 stundum í dag
öðlingsmaður á ferð
knúsið alla sem ykkur þykir vænt um næst verður það örugglega fanney sem bloggar
lífið er yndislegt
elskið og knúsið hvort annað
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.7.2008 | 18:05
Fanney hér ! ;*
Jæjaaa !
ég er í heimsókn á Hamarskoti og mig langaði til að blogga smá ! það er ekki það ooft sem að ég geri það !
en það gengur bara veel hjá mér :) ..
þetta eru samt búnar að vera ansi skrautlegar 8 vikur sem að ég er búin að vera þarna á Götusmiðjunni .. það er búin að ganga upp og niður en núna vona ég að það fari allt uppávið ..l annars veit ég ekkert hvað ég á að segja !
knús & kossar !
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
16.6.2008 | 08:06
Samráðsfundur og Heimsökn
já við fórum á samráðsfund á þriðjudaginn sem gekk nú ekki vel til að byrja með fanney var nú bara búin að pakka og á leið heim hún var harðáhveðin í því úff hvað ég fékk illt í magan bara við tilhugsunina því hún er eingan vegin tilbúin að koma heim en það er svona ef fanney mín ræður ekki alveg við aðstæður þá er bara fluið að hólmi þetta er bara eins og það var hérna heima en sem betur fer með góðri hjálp ráðgjafa þá var hægt að snúa henni við og þvílíkur léttir púff en samt allan tíman sem fundurin var skypti hún um skoðun ég lét hana samt vita af því að ég æri ekki tilbúin til þess að fá hana heim sagði við hana að traustið væri ekkert og minnti hana á nóttina sem hún velti bílnum að mig hefði ekki langað til að sjá hana og fór ég ekki uppá sjúkrahús í bænum til þass að hitta hana ég var bara búin að fá nóg
en þetta endaði betur en á horfðist í fyrstu 
En svo að heimsöknini það flugu ýmsar hugsanir um kollin verður hún eins og á fundinum eða hvað en nei stelpan sem kom út á móti okkur hljóp beint að bílnum til systra sinna og knúsaði þær í kaf og sérstaklega hana maríu hennar uppáhald og hún var nú ekki búin að gleyma henni fanney sinni vildi nú bara hvergi annars staðar vera en það var ein af ástæðunum fyrir því að hún sagðist vilja koma heim stelpurnar mundu örugglega vera búnar að gleyma sér en svo var nú ekki þótt þær hefðu ekki séð hana í 5 vikur
en þessi heimsökn var bara yndisleg í alla staði fanney var mjög sátt núna leið bara vel og fannst svo gott að fá systur sínar en því miður komumst við ekki næst en pabbi hennar ætlar með litluna sína sem fæddist degi á eftir þríburunum og var hún mjög sátt við það knúsaði okkur í bak og fyrir og sagði sjáumst eftir 2 vikur elska ykkur það var svo gott að fá þetta knús og þessi orð alveg yndisleg því miður komst bróðir hennar ekki því hann var farin norður á strandir gat ekki beðið eftir að við færum í dag
hann elskar djúpavíkina sína líður hvergi betur held ég en í sveitasælunni
en þangað til næst knúsið hvort annað
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.6.2008 | 00:51
mikið að gera
já það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér var mikið ein með þríburana svo það er búið að vera mikil blogleti hjá mer
En af fanney minni er allt gott að frétta hún var nú samt að tala um það um dagin hvað hún saknaði allra og átti frekar mikið erfitt langaði nú bara heim en svo í næsta skipti sem ég heyrði í henni var nú allt komið í lag það er víst bara voða erfitt að vera í meðferð hvað þá svona lítil eins og elskan mín er en hún klárar þetta hún sagði það og það er bara svooleiðis með hana fanney mína ef hún bítur eitthvað í sig þá gerir hún það hún var búin að seigja mér fyrir laungu síðan að hún ætlaði að prófa eiturlyf sem hún svo gerði því miður
það er bara svona hjá henni en nú er allt uppávið þegar ég heyrði í henni síðast þá var hún að spurja mig hvernig þvott og á hvaða kerfi hún ætti að setja þetta og hitt á bara dúlla
ég hélt nú ekki að okkar samræður yrðu á þessum nótum á næstuni en guð hvað það var gaman að tala um þvott við hana he he
við erum að fara á samráðsfund á götusmiðjuna í næstu viku það verur svo yndislegt að sjá hana ég er farin að sakna hennar svo mikið hún er nú einu sinni litla barnið mitt
skrifa meira eftir fundin
knús á ykkur öll 
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.5.2008 | 00:27
Allt frábært
Ég heyrði í fanney minni í dag og þvílík breyting á einni viku það var svo gott hljóð í henni allt er svo gott þarna hún er áhveðin í því núna að vera allan tíman en með góðri hegðun hefði hún getað farið eftir 12 vikur en ætlar að vera 15 og svo er hún búin að tala við ráðgjafan sinn sem mælti með því við hana að fara á áfangaheimili á selfossi eftir dvölina þarna og finnst mér það bara gott mál
hún var svo jákvæð og svo sagði hún við mig mamma ég er svo þakklát hvað þú varst frek við mig og fórst með mig hingað þetta er yndislegur staður og svo kom ég elska þig svo mikið frútta tútta (þetta er svona húmor okkar á milli) þá komu tárin fram í augunum á mér og þá sagði ég ég elska þig líka gúggsan mín (meiri húmor)
en þetta köllum við hvor aðra hérna milli okkar bara sætt finnst mér
en svo að öðru þá var hún í art theropi ( veit ekki hvernig það er skrifað ) en samt þá er málað í því og hún mátti ráða hvernig hún málaði og hún áhvað að mála með tánum
það sem dóttir minni dettur ekki í hug hún er svo frábær þessi elska og vona ég svo innilega að ég fái að sjá afraksturin af þessari sköpun en svo næstu helgi eru þau að fara í sumarbústað bara frábært
svo sagði þessi elska við mig að hún ætlaði bara að fara að borða hollt núna guð minn góður þá verð ég að fara að hætta að drekka kók ég er forfallin kók fíkill
úffff þetta verður erfit fyrir mig en ef hún getur losnað undan sinni fíkn þá hlýt égf að geta losnað undan minni haldiði það ekki annars 
svo eitt í lokin ég sagði henni að ég væri byrjuð að blogga á síðuna og hún spurði hvernig comment færðu ég sagði að þau væru bara frábær þarf endilega að lesa fyrir hana í næstu viku þegar ég heyri í henni aftur henni finnst svo yndislegt hvað allir hugsa fallega til hennar þið eruð frábær
knús og kossar á ykkur öll
Um bloggið
Fanney Unnur Sigurðardóttir
330 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 56263
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


skjolid
engilstina
huldumenn
daudansalvara
mammann
binnan
godinn
alexandra-hetja
raggim
skruddulina
olafurfa
kynvillingur
liljabolla
skralli
laugatun
jonaa

![Picture%20045[1]](/img/tncache/s100/f2/fanneyunnur/img/c_documents_and_settings_administrator_local_settings_temporary_internet_files_content_ie5_cvp68e3v_picture_20045_1.jpg)
![Picture%20045[1]](/img/tncache/s100/f2/fanneyunnur/img/c_documents_and_settings_administrator_local_settings_temporary_internet_files_content_ie5_pzvowg3g_picture_20045_1.jpg)


